
Ég var búin að lofa einhverjum að setja inn mynd af sælureitnum okkar. Framkvæmdirnar rigndi niður með haustinu en áætlunin var upphaflega sú að búið yrði að setja klæðningu utan á bæði húsin fyrir veturinn. Það náðist þó að taka til í kring fyrir snjóa. En svona leit þetta út í lok ágúst og hefur lítið breyst.
Nota bene þá á eftir að setja "pósta" í gluggana á stóra húsinu þannig að þeir munu ekki líta alveg svona út. Og þetta hvíta er ekki klæðning heldur undirlag, eða eitthvað svoleiðis.
Það sést þarna glitta í tvöfalda hurð sem snýr nokkrunvegin í suður og ég segi og stend við það að það er alltaf skjól undir þessum vegg hvernig sem vindur blæs.
Ummæli
Skrifa ummæli