Ég ætlaði að setja inn mynd af JG að moka pallinn en það gengur eitthvað brösulega.
Heimasætan er einhversstaðar á leiðinni vestan úr Hrútafirði. Ég veit ekki annað en allt gangi að óskum. Það þurfti að senda bíl til að ná í hópinn því að áætlunarferðin fór ekki úr Reykjavík í morgun vegna veðurs.
Ég fór að leita að snjóskóflunum áðan eftir að hafa þurft að ösla snjóinn í hné fyrir utan útidyrnar.
JG er kominn inn. Farinn úr blautu fötunum. Hann var ekki klæddur til útiveru enda búinn að vera inni á í næstum þrjár vikur. Hann er annars orðinn alveg frískur og fékk þessvegna að moka í smástund, en núna þarf hann "aðeins" að komast í tölvuna.

Ummæli
Skrifa ummæli