Fara í aðalinnihald

Jamm og jæja

Það var alhvít jörð í morgun.
Veturinn mættur á svæðið.
Vetrarkápan, skósíð og þykkur trefill um hálsinn, fann enga vettlinga?
Lopapeysan innanundir, rennt upp í háls.
Litla barnið hóstaði svo að það munaði ekki miklu að snúið væri við í útidyrunum. En hvað um það.

Klukkan rúmlega fimm fór ég úr vinnunni með kápuna á handleggnum og trefilinn flaksandi á eftir mér í sunnangjólunni. Lopapeysan "frárennd".

Svo fór ég og hengdi út á snúrur, sem þýðir að það hefur ekki rignt í dag. Hm...

Mér er alveg hætt að lítast á hvað ég blogga sjaldan.....

Ummæli