Nú er ég búin að fá eldskírnina. Fór í Mývatnssveit á sunnudaginn í skipaferð með leiðsögumanni. Fékk aðeins að láta ljós mitt skína og meira að segja tekin upp á video í Dimmuborgum. (með fæturna í sitthvorri heimsálfunni!).
Í gærmorgun fór ég svo ein með 52 í ferð sem heitir "a glimpse of culture" og þá er farin Eyjafjarðarhringurinn, sá stærri, skoðaðar tvær kirkjur, hestasýning borðað í Íslandsbænum og síðast en ekki síst verslað í Jólagarðinum. Ég bara stóð mig nokkuð vel. Gleymdi að kynna bílstjórann í upphafi ferðar, bætti svo úr því, var líka pínulítið skjálfrödduð svona fyrstu mínútuna. Ehemmm. En skemmti mér svo alveg konunglega restina af ferðinni.
Svo er það bara Mývatnssveit í næstu viku.

Ummæli
Skrifa ummæli