Það rauk upp með sunnanroki í morgun með tilheyrandi moldroki úr ökrum og flögum bændanna í sveitinni. Ég harkaði af mér og hjólaði í vinnuna með moldarbragð í munninum. Íþróttaálfurinn var heima í dag, með slæman hósta. Stóra systir er búin í skólanum og "neyddist" til að vera heima hjá honum og leiddist með stórum stöfum. Hún ætlar að skella sér í bíó með bekkjarfélögunum á eftir og sjá Da Vinci lykilinn.
Við hjónin fórum í öróvissuferð í gærkvöldi og enduðum á Friðrik V. Snæddum þar dýrindis máltíð í góðra vina hópi og komum alltof seint heim. Þetta er í annað skipti á nokkrum vikum sem við borðum hjá Friðrik. Bæði skiptin stórkostleg upplifun.

Ummæli
Skrifa ummæli