Fara í aðalinnihald

Sumarblíða

Við áttum góðan dag í gær. Fórum í eina stúdentsveislu, skemmtilega óformlega, inni í Kjarnaskógi. Nýstúdentinn er ekki sérlega mikið fyrir tilstand og stakk upp á pikknikk í Kjarnaskógi með kaffi og kleinum. Ýmislegt fleira hafði slæðst með í nestisboxið og skálað var í óáfengu kampavíni. Þetta var mjög gaman og til eftirbreytni.

Við kíktum svo á Ráðhústorgið á Akureyri en seinnipartinum var eytt fyrir framan sjónvarpið. Við skutumst heim í hálfleik til að setja upp kvöldmatinn. Ég var búin að bjóða mömmu í mat og hún ætlaði að koma eftir leik. Þegar fimm mínútur voru eftir kom hún á harðaspretti. Gat ekki setið lengur ein heima yfir landsleiknum, spenningurinn var svo mikill.

Tengdamóðir mín er mesti handboltaáhugamaður sem ég þekki og JÓH þorði ekki annað en að hringja í hana í gærkvöldi svona til að vita hvernig hún hefði það. Hún þekkir allt landsliðið með nafni og ætt og uppruna sumra. Hún hefur nærri eins mikinn áhuga á fótbolta, nema þegar afkomendurnir eiga hlut að máli.

Í dag er sól og blíða og við JG ætlum að byrja daginn á því að fá okkur smá hjólatúr. Síðan er planið að fara út í Svarfaðardal og dunda eitthvað. JÓH fór úteftir í nótt (var bílstjóri hjá Hofsárhjónum, en þau voru í höllinni að samfagna með stúdentinum). Hann nenti ekki að keyra til baka, byrjaði bara að smíða snemma í morgun í staðinn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.