Fara í aðalinnihald

1. sunnudagur í aðventu


Við erum með klára verkaskiptingu á heimilinu hjónin. JÓH eyddi deginum í þvottahúsinu. Núna var það loftklæðningin. Flísalögnin er búin og bara eftir að fúga. Þá getum við flutt þvottavélina úr bílskúrnum.

Ég aftur á móti eyddi deginum í eldhúsinu og eins og sjá má urðu sortirnar 3. Sú fjórða þarf að bíða í ísskápnum til morguns. Tvær gamlar uppskriftir og ein ný sem ég fann í kökublaði vikunnar. Líklega verður ekki meira bakað fyrr en eftir 20. des. nema allt klárist, þá baka ég meira. Ég á líka eftir að baka eins og eina tertu eða tvær og dálítið af gerbollum. Ég uppgötvaði það fyrir ekki svo mörgum árum síðan að það að hafa gerbollur með smjöri og osti með súkkulaðinu á jóladagsmorgun er jólin fyrir börnunum mínum. Það fattaði ég árið sem ég ætlaði ekki að nenna að baka bollurnar og var rukkuð um þær á Þorláksmessu.

Það eru einmitt hefðirnar sem gera jólin að svo heillandi tíma. Þegar við JÓH fórum að halda jól saman þá bjuggum við til okkar eigin hefðir og þær eru svona sambland af því sem við ólumst upp við og ýmsum smáhlutum sem hafa komið til okkar í gegnum árin.
Fyrsti desember var í gær og sá tími ársins sem mér þykir einna skemmtilegastur framundan. Það er að vísu stresstími í vinnunni. Námsmat og tilheyrandi í sambland við jólaundirbúningin. En mikið sungið og gleðin og fyrirrúmi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.