Jólin komu klukkan 6 í gærkvöldi. Loksins, loksins eins og JG sagði. Hann átti mjög erfiðan dag í gær. Alveg þangað til amma kom klukkan 5 og hann fékk að taka upp einn pakka. Til allrar lukku pleymó sem þurfti að setja saman (Takk Gísli og Þorgerður).
Hefðirnar eru mjög mótaðar hér á þessu heimili. Á aðfangadag fer ég ekki út fyrir hússins dyr. Er bara að dúlla mér hérna heima. En JÓH þarf að komast í sinn bíltúr og fer gjarnan einn jólakortahringinn og er lengi. Krakkarnir fara svo með pakka til langömmu og kort í næstu hús. Þau báru JG út organdi eftir hádegið þá var hann búinn að sitja við jólatréð allan morguninn og langaði svoooo bara í einn pakka. Bræður hans kinkuðu bara kolli og sögðust muna eftir þessu ári í sínu lífi. Þá var ég allt í einu alein heima, lækkaði í barnaefninu í sjónvarpinu og hlustaði á rás 1 meðan ég saxaði rauðkál, epli, lauk og beikon! (uppskrift úr Vikudegi, frá Friðrik V).
Seinni árin förum við í jólamessu klukkan 22:00 og það er yndislegt að fara út og hitta sveitungana, óska fólki gleðilegra jóla og syngja Heims um ból með troðfullri Grundarkirkju eins og í gærkvöldi. Við komum heim aftur glöð í hjarta og sinni á tólfta tímanum.
Gleðileg jól

Ummæli
Skrifa ummæli