Fara í aðalinnihald

Jólaundirbúningur

Framhald af síðasta pistli.
JÓH og Úlfar Bjarki eru úti í garði að setja seríuna í tréð. Þetta er með allra, allra síðasta móti verð ég nú að segja. En maðurinn minn verður mjög ástríðufullur þegar kemur að jólaseríum og síðasti sólarhringurinn er búinn að vera frekar taugatrekkjandi hér á heimilinu. Leit á tímabili út fyrir að jólahaldi yrði frestað... eða svo til.
Það slokknaði á jólaseríunni...
Veðurfarið hefur ekki verið upp á sitt besta fyrir hangandi útiljósaskreytingar og í fyrradag slokknaði á stóru seríunni á þakskegginu.
Síðan seinnipartinn í gær er húsbóndinn á heimilinu búinn að vera meira og minna hangandi uppi í stiga eða úti í skúr. Búinn að skrúfa allar perurnar úr tvisvar a.m.k. og í aftur. Taka alla seríuna niður og negla hana upp aftur einu sinni. Var að þessu fram á nótt og fór á fætur löngu á undan mér í morgun (enda er ég komin í jólafrí). Þetta leit ekki vel út þegar í ljós kom að perurnar sem vantaði voru ekki til í verslunum á Akureyri. Húsbóndanum leið að vísu örlítið betur þegar hann uppgötvaði, eftir að hafa þrætt byggingarvöruverslanirnar, að hann var ekki sá eini sem var að leita að jólaljósunum!
Pabbi átti svo leið um í dag og rétti perur þegar húsbóndinn skrúfaði þær í í ... skipti. Og viti menn loksins kviknaði ljós. Við getum semsagt haldið jól.

Á meðan er ég búin að skúra og bóna eldhúsið. Baka tvær pavlovur og eina smákökusort, pakka inn nokkrum jólagjöfum og skrifa á tvö jólakort.

Á eftir stendur til að sækja jólatréð og fara í matvörubúð.

Jólasveinninn stendur sig ekki nógu vel það var ekkert í skónum hans JG í morgun þó setti hann báða spariskóna sína út í glugga í gær. Skamm, skamm. Kannski stendur Kjötkrókur sig betur í nótt.

Ummæli