
JÓH er að dúlla sér úti í myrkrinu núna þessa stundina. Hann er búinn að setja upp seríuna á þakskeggið og í einn runna og ætlar að klára grindverkið kringum pallinn líka í kvöld. Jólatréð verður að bíða eitthvað. Myndin er frá í fyrra þegar þeir feðgar bisuðu við þetta þrír saman í 20 stiga frosti. Núna er talsvert hlýrra og minn maður húfulaus þó hann sé nú gallanum. Strákarnir eru á kafi í próflestri og ekki til viðræðu fyrr en um næstu helgi þannig að nágrannarnir þurfa að bíða aðeins eftir jólatrénu. Það er líka að verða spurning hvort við þurfum ekki að leigja krana því tréð stækkar með hverju árinu og kústskaftið dugði varla til að ná upp á toppinn þegar JÓH var búinn að klöngrast upp í efsta þrepið á "metorðastiganum".
Ummæli
Skrifa ummæli