Ég var að koma heim af frábæru námskeiði hjá Sólveigu Eiríksdóttur "Sollu grænu". Þar sem við fengum fyrirlestur og svo elduðum við sjálfar allskonar rétti. Kvenfélagið mitt stóð fyrir þessu námskeiði og er það sannarlega gott framtak. Mér þykja grænmetisréttir ofsalega góðir en ef að ég ætti að verða grænmetisæta eingöngu yrði ég að búa ein. Ekki það að JÓH myndi ekki láta sig hafa það. Unglingarnir myndu líklega flytja að heiman "med det samme".
Það hefur að vísu breyst mjög mikið mataræðið á heimilinu síðustu mánuði. Sem er bein afleiðing af átaksverkefnum okkar hjónanna. Árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa. Þetta námskeið kemur því alveg á réttum tíma fyrir mig.
Unglingunum leist ekki meira en svo á afgangana sem ég kom með með mér og spurðu hvað yrði í matinn í kvöld. Ég kom smávegis af spírum og salati með heim. Ég gat nú frætt þá á því að það yrðu tvenns konar baunir!!
Ég ætla nefnilega, aldrei þessu vant, að elda eftir uppskrift sem ég rakst á í gömlum gestgjafa. Ekki grænmetisrétt því það er lambakjöt í honum en líka linsur og kjúklingabaunir.
Ég lét JÓH skutla mér yfir um í morgun, því námskeiðið var yfir á Laugalandi. Þegar við komum í miðja brekkuna sáum við reykjarmökkinn sem lokaði nánast firðinum til norðurs. Íbúar í Innbænum og á Eyrinni á Akureyri hafa varla séð út úr augum í morgun. Það er mér alveg fyrirmunað að skilja gagnsemina í því að brenna sinu. Það hefur til allrar hamingju dregið mjög úr þessari áráttu landeigenda að vera að kveikja í hjá sér síðustu ár, enda búið að planta trjám svo víða hér. En því miður fyrir íbúa Akureyrar eru þeir sem mest brenna staðsettir nálægt bænum og eru að brenna stór flæmi í mýrunum. Ég gat ekki betur lesið úr fréttinni á mbl.is en að viðkomandi bóndi hafi verið látinn slökkva í hjá sér en hann hafði samt tilskilin leyfi. Mér finnst að þetta eigi að vera bannað alfarið. Og hananú.

Ummæli
Skrifa ummæli