Helgarnar eru allt of fljótar að líða. Mánudagsmorgun framundan og tiltölulega annasöm vika framundan. M.a. forsetaheimsókn á miðvikudaginn, en það verður nú bara gaman.
Ein af afleiðingum sítengingar er að maður dettur "inn" í tölvuna annað slagið og gleymir sér gersamlega í einhverju vafri. Fann til dæmis skemmtilegar uppskriftir af poncoum sem ég heklaði. Nú er ég að herða mig upp í að prjóna sjal sem ég fann uppskrift af á netinu. Að vísu á ensku og það fælir mig frá.
Ég leita auðvitað að einhverju áhugaverðu fyrir mig og í haust datt ég niður á bloggsíður hannyrðakvenna. Það er sýnilega prjónaáhugi í fleiri löndum en á Íslandi. Ég læt hér fylgja með tengil inn á síðu þar sem er langur listi af bloggsíðum.
Norræn prjónablogg

Ummæli
Skrifa ummæli