Fara í aðalinnihald

slysó

Við mæðgurnar eyddum síðdeginu á slysavarðstofunni á FSA. IH tókst að brjóta á sér eina tá í stórfiskaleik í morgun (hljóp á vegg). Hún haltraði um í skólanum fram yfir hádegi en þá var fóturinn á henni orðinn svo blár og bólginn að við ákváðum að láta líta á hann.
Það var potað og myndað og svo fékk hún plástur á tána! Þetta tók þennan hefðbundna tíma eða hátt í tvær klukkustundir.
Merkilegar þessar biðstofur á sjúkrastofnunum. Þar liggja frami staflar af slúðurblöðum. Síðast þegar ég beið þarna voru blöðin flest á norsku eða dönsku, en nú bar svo við að þarna voru staflar af Mannlífi og öðru íslensku slúðri en ekkert blað yngra en 2 ára. Ég stytti mér biðina með því að lesa lífsreynslusögur í Vikunni í hálfan annan klukkutíma. Vikan er annars lítið annað en endalausar megrunarsögur og uppskriftir af megrunarkúrum!

Ég brunaði með IH í bæinn á smábílnum, stundum er gott að vera með frestunaráráttu því við vorum ekki búin að taka snjódekkin undan bílunum eins og svo margir aðrir. Það þurfti nú svolítið að stilla sig inn á hálkuakstur aftur eftir margra vikna vorveður hér á norðurhjaranum. En nú er veturinn kominn aftur, í bili a.m.k.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.