Ég er ekkert mikið fyrir að kvarta en ég er alvarlega að hugsa um að stofna samtök gegn sinubrunum. Brennuglaður sveitungi minn notaði norðan andvarann seinnipartinn til að kveikja í aftur og nú leggur mökkinn yfir hjá okkur. Fyrir utan að mann langar ekkert að fara út í góða veðrið í kvöld þá er ég með fullar snúrur af þvotti sem fara beinustu leið í vélina aftur!!
Ég held að óþægindi þúsunda íbúa hérna á svæðinu hljóti að fara að vega hærra en hagsmunir einstaka bænda sem hafa talið sér trú um að það sé eitthvað gagn af því að brenna sinu. Því ekki ætla ég að menn geri þetta aðeins til að vera til leiðinda og valda ergelsi og pirringi í nágrenninu.

Ummæli
Skrifa ummæli