
Hér er mynd af afmælisbörnum dagsins og gærdagsins. Myndin er tekin um páskana og líklega eru þeir að horfa á ... fótbolta???
Ég knúsaði pabba í morgun í vinnunni og af því að mamma er að vinna er ég búin að bjóða honum í mat í kvöld. Það er eins gott að það verði eitthvað almennilegt að borða. :)
Unglingarnir eru rétt ókomnir heim úr skólaferðalaginu. Við höfum hvorki heyrt hósta né stunu frá þeim alla vikuna og ég er farin að hlakka til að heyra ferðasöguna.
Ummæli
Skrifa ummæli