Hún sveif framhjá bílnum þegar við vorum á leiðinni heim í dag. Með hægu vængjataki. Ekki stór búkur miðað við vænghaf og það er eins og það vanti á hana höfuðið. Skrítinn fugl, uglan meðal annarra íslenskra fuglategunda.
Ég man aldrei eftir að hafa séð uglu þegar ég var barn nema snæugluna í Sædýrasafninu. En núna rekst maður á þær annað veifið hérna í firðinum. Þær sitja á girðingarstaurum og horfa á mann tortryggnar á svip um leið og þær breiða út vængina og líða á braut. Þær fljúga hljóðlaust.

Ummæli
Skrifa ummæli