Fara í aðalinnihald

hljóð úr horni

Ég er ekkert hætt að blogga. Ef að ég hef sest við tölvuna undanfarið hefur eitthvað truflað mig eða þá að mér hefur ekki dottið neitt gáfulegt í hug að skrifa.

Þá eru unglingarnir á heimilinu að fara í fyrsta samræmda prófið á morgun. Ég hef verið að leika ábyrgt foreldri um helgina og farið yfir helstu málfræðiatriðin með þeim. Verð að viðurkenna að ég er farin að ryðga ansi mikið í setningafræðinni og germynd og þolnmynd, svo eitthvað sé nefnt. Mér sýnist þeir vera bara nokkuð vel staddir og vona bara að allt gangi vel.

Þeir eru báðir komnir með sumarvinnu og verða meira og minna að heiman í sumar. Svo er bara að ákveða hvað á að taka sér fyrir hendur næsta vetur. Þeir eru ekki búnir að ákveða hvort VMA eða MA verður fyrir valinu. Kannski fara þeir bara í sitthvorn skólann, en það fer nú svolítið eftir hvernig þeir koma út úr prófunum. Við höfum ekki ætlast til annars en að þeir stæðu sig það vel að þeir gætu valið um skóla.

Þó að við JÓH höfum bæði verið í MA og kynntumst þar meira að segja ætlumst við ekki til þess af börnunum okkar að þau fari þangað þess vegna. Ef að VMA hefði verið til staðar fyrir tuttugu og fimm árum þá hefði ég farið þangað frekar en í MA, held ég.
En ekki þar fyrir að MA var og er góður skóli og þar tók ég út ansi mikinn þroska á þeim fimm árum sem ég var að brasa við að ljúka stúdentsprófi. Við erum einmitt að undirbúa tuttugu ára stúdentsafmælið þessa dagana og erum farin að telja dagana til 14. júní... trallallallalei...

En alveg er það ótrúlegt hvað þetta er orðinn langur tími.

Ég var að horfa á "Út og suður" í sjónvarpinu áðan en Gísli var að tala við hana Guðveigu á Hálsi. Við fórum fyrir jólin tólf saman og borðuðum hjá henni. Það var alveg meiriháttar og það er á áætlun að fara í gönguferð upp að Hraunsvatni í sumar og enda svo í mat á Halstjörnunni. Hún hefur verið að vinna í afleysingum á leikskólanum hjá okkur í vetur og hefur ekki látið sig muna um að keyra alla leið vestan úr dal og hingað frameftir.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.