Feng sui fræðin segja manni ýmislegt um jafnvægi hlutanna. Ef að ég væri innvinkluð í þessi fræði væri ég örugglega flutt út því lausleg greining segir að eldhúsið sé á versta stað og hjónaherbergið líka! Svo er ég með stóran spegil á móti útidyrum (að vísu forstofuhurð á milli) sem er líka mjög slæmt fyrir feng suið í húsinu.
Mér líður samt frekar vel í húsinu mínu, þó að það sé allt í drasli (óreiða er líka slæm fyrir feng suið), eins og núna og það eigi eftir að skrúfa nokkra gólflista. Og fjölskyldan er bara í þokkalegu jafnvægi, takk fyrir.
Annars settist ég niður við tölvuna núna til að taka mér pásu frá þvottinum sem af einhverjum dularfullum ástæðum hrúgast upp. Loksins er hægt að þurrka úti á snúrum og þegar óhreinatauskarfan er að verða tóm er borðstofuborðið orðið fullt af hreinum þvotti. Sumir myndu segja að þetta væri spurning um skipulagningu og ganga frá þvottinum jafnóðum og hann er orðinn þurr. Mér finnst bara miklu skemmtilegra að hengja út þvott heldur en taka hann inn og brjóta saman.
Ég fór út á snúrur í morgun að hengja út þvott sem er svo sannarlega andlega uppbyggjandi iðja snemma að morgni og þá komst ég að þeirri merkilegu niðurstöðu að þvottur á snúrum væri hreinlega listaverk á sinn hátt. Það liggja nefnilega heilmiklar pælingar bakvið blaktandi þvott á snúrum.
Nú er ég alveg að tapa mér. Það er best að halda áfram að strauja.

Ummæli
Skrifa ummæli