Sem sérlegur aðdáandi Júróvísíón má ég til með að tjá mig örlítið hér um keppnina í ár. Eins og aðrir sat ég spennt við sjónvarpið í gærkvöldi og horfði opinmynnt á íslenska lagið. Mér hefur nú fundist þetta lag frekar flott og Selma sérlega smart í videóinu í rauða síðpilsinu með bogann en .... Það er bara ekki nóg að vera smart í rauðu það skiptir pínulitlu máli hvernig efnið er klippt niður og saumað saman.
Mér fannst hún vera eins og tíu ára stelpa á náttfötum en konan er bara komin hátt á þrítugsaldur og eins og Páll Óskar sagði einhversstaðar í dag þá er hún með flottar línur og á að sýna það. Heimasætunni varð bara að orði að þetta væri alveg eins og Abbabúningurinn sem hún og vinkona hennar skrýddust á síðustu skólaárshátíð! (hún er ellefu ára nb).
Ég læt þetta nú ekki á mig fá og sest hamingjusöm fyrir framan sjónvarpið annaðkvöld, held bara með Noregi. Nemendur mínir voru sammála um að það væri flottasta lagið í undankeppninni. Við erum að spá í að elda pizzu. Það er alhvít jörð hér í Eyjafjarðasveitinni og JÓH langar ekkert að standa úti með grilltöngina í frosti og snjó.
Það er stundum gott að þjást af frestunaráráttu. Hvernig færi fyrir gulrótunum mínum ef að ég væri búin að sá þeim núna þær myndu bara frjósa í hel...

Ummæli
Skrifa ummæli