Eftir alveg frábæra helgi vaknaði ég með hálfgerðan hausthroll á mánudagsmorguninn en þá var fyrsti vinnudagur haustsins.
Helgin var "pökkuð" eða þannig. Ég var að vinna fyrir kvenfélagið á fimmtudag og föstudag á Handverkinu. Á laugardaginn fórum við út á Dalvík eins og öll hin 30.000 og smökkuðum eitt og annað hittum fjölda manns en fórum á mis við enn fleiri. Það var gaman eins og alltaf og ótrúlega greið umferðin miðað við allt. Við fengum t.d. bílastæði alveg við hliðina á hátíðarsvæðinu (norðan við).
Á sunnudaginn var svo sveitamarkaðurinn sá næst síðasti en við endum sumarið á sunnudaginn kemur.
Við fengum líka kærkomna gesti um helgina en Hildur frænka, Ingó og Hinrik komu og gistu hjá okkur í Brekkutröðinni. Hildur kom með húfurnar sínar á sveitamarkaðin og gekk bara vel.
Hildur mín takk enn og aftur fyrir samveruna um helgina vonandi komið þið sem fyrst aftur.

Ummæli
Skrifa ummæli