
Við pabbi skröltum upp í fjall með berjatínur í dag og afraksturinn var vægt til orða tekið glæsilegur. Mamma og Inga Hildur leituðu að bláberjum og Jóhann Gylfi var svo heppinn að frændur hans voru í berjamó með afa sínum og ömmu þannig að það voru nógir að leika sér með. Hoppa yfir lækinn til dæmis. En það fór enginn blautur heim.
Það er nóg af krækiberjum, bláberjum líka ef út í það er farið en skyggnið var ekkert sérstakt í sólinni seinnipartinn í dag. Krækiberin eru stór og stútfull af sólskini.
Tvíburarnir fá það í afmælisgjöf á morgun að mamma þeirra ætlar að búa til krækiberjasaft handa þeim þetta haustið.
Það vantar bara fallegar flöskur til að setja saftina á. Við fengum okkur auðvitað skyr með berjum og rjóma í kvöldmatinn.
Ummæli
Skrifa ummæli