Fara í aðalinnihald

Syfja



Þegar íþróttaálfurinn vaknar á morgnanna (upp úr sjö) mætir hann kisu jafnan á ganginum og þau setjast niður saman smástund til að vakna almennilega. Hann spurði í morgun "mamma af hverju ferð þú alltaf fyrst á fætur?". Hm. Líklega er það vegna þess að ég þarf lengstan tíma til að taka mig til og svo þarf ég að hugsa um hann. Ég reyndi að svolítið að nota þessa spurningu til að ýta undir það að hann klæddi sig sjálfur en það er mjög erfitt snemma á morgnanna.
Að vísu mætti ég heimasætunni fyrir sjö í morgun og þá var hún búin að fara í sturtu og var að slétta á sér hárið. Svo beið hún eftir því að fyrsti skóladagurinn á unglingastigi hæfist.
Ég er að hlusta á útvarpið bakvið. JÓH og Óskar voru í einhverju fréttaspjalli í dag sem að ég missti af. Það er svo ansi gott að geta náð þessu eftir á. Á eftir þeim heyrði ég í Öbbu á Bjargi og verð að minnast á að á mánudaginn byrja ég í ræktinni og nú er það bara harkan sex næstu tólf vikur.
Svo er það Akureyrarvakan á morgun. Það er á áætlun að fara a.m.k. á tónleikana í Gilinu annað kvöld.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.