Ósköp ljúfir síðustu dagarnir í sumarfríinu. Ég kíkti aðeins í skólann í gær svona aðeins til að finna lyktina, eða þannig. Þar er auðvitað allt á öðrum endanum þessa dagana út af handverkinu, sem byrjar á morgun og er alltaf jafn skemmtilegt að fylgjast með.
Ég er einmitt núna á leiðinni niðureftir til að kíkja á básinn okkar í kvenfélaginu. Við verðum þar að selja dagatalið okkar og svo afurð sumarvinnunnar og þar er nú sjón sögu ríkari.
Ég er einmitt núna á leiðinni niðureftir til að kíkja á básinn okkar í kvenfélaginu. Við verðum þar að selja dagatalið okkar og svo afurð sumarvinnunnar og þar er nú sjón sögu ríkari.
Ummæli
Skrifa ummæli