Súldin hangir hérna yfir þessa stundina, annan daginn í röð. Ég er samt að hugsa um að draga íþróttaálfinn á fætur og fara með hann í hjólatúr í rigningunni. Við erum ennþá í náttfötunum að dúlla okkur í morgunmat og svona. Það er um að gera að njóta síðustu daganna í sumarfríinu.
Við skruppum á fimmtudagskvöldið var í örstutta útilegu. Fórum með tjaldvagninn í Hólaskóg og hittum þá bræður Trausta og Jón og fjölskyldur. Á föstudagskvöldið þegar við vorum á leiðinni heim um átta leytið tókum við eftir miklum viðbúnaði við Háls í Öxnadal og vorum að spá í hvað væri eiginlega um að vera þar. Ég á eftir að naga mig í handarbökin það sem eftir er að hafa misst af þessu tækifæri til að sjá Sigurrós "live". Þetta var víst upplifun og ekki skemmdi veðrið og staðsetninginn fyrir.

Ummæli
Skrifa ummæli