
Ósköp dimm og drungaleg mynd tekin í -18°C á laugardegi viku fyrir jól. Nú er allur snjórinn horfinn og í dag fórum við JG í hjólatúr í góða veðrinu. Hann getur ekki beðið eftir áramótunum, eða öllu heldur að þau líði hjá því þriðja janúar verður hann 6 ára - loksins. Eftir hjólatúrinn fór drengurinn að hjálpa bræðrum sínum og frændum í efnisflutningum í áramótabrennuna. Maður vonar að veðurblíðan haldist eitthvað áfram.
Ef að myndin kemur sæmilega út sést hvað var kominn mikill snjór þarna. Snjór sem hvarf alveg á rúmum sólarhring.
JÓH er úti núna á peysunni með vasaljós að leita að ónýtri peru í fínu seríunni sem prýðir þakskeggið á húsinu ( sést kannski á myndinni ef vel er rýnt). Eftir að hafa barist um í roki og rigningu í marga daga án þess að blikka svo mikið sem einu sinni slokknaði á öllu saman í blíðunni í nótt. Ekki gott mál.
Við fórum í bíltúr í gær og skoðuðum vegsummerki flóða og skriðufalla í framfirðinum, fórum fram í Djúpadal en til að fara fram að Grænuhlíð hefðum við þurft að fara austur fyrir því brúin á Djúpadalsánni er enn lokuð. Annars sást þetta nokkuð í Ríkissjónvarpinu í kvöld ástandið í Grænuhlíð. En það eru aurskriður mjög víða í fjöllunum hérna, þó ekki hafi orðið tjón. Okkur sýndist vera verið að byrja á því að vinna að endurbótum á veginum við brúna. Þetta er satt best að segja allt saman með ólíkindum og best að þakka Guði fyrir það að enginn slasaðist þennan dag eða þaðan af verra.
Ummæli
Skrifa ummæli