Vöknuðum "snemma" í morgun og brunuðum í Ólafsfjörðinn þar sem okkar beið indælis ofnsteikt villigæs og alls konar góðgæti með, hjá Þóri og Boggu. Tengdamamma kom með okkur og í bakaleiðinni fórum við hringinn í Dalnum (Svarfaðar...) og skoðuðum ljósaskreytingar á bæjum. Á Hólnum er ljósasería á þakskeggi og aðventuljós í gluggum sem tók sig vel út í rökkrinu seinnipartinn í dag.
Annars var góður dagur í dag því pabbi kom heim seinnipartinn eftir nokkurra vikna sjúkrahúsdvöl. Við komum við á heimleiðinni hjá þeim og litla húsið var fullt af fólki og allir svo glaðir.
Þeir voru svo að fara í flugeldaleiðangur núna áðan JÓH, Gísli bróðir og pabbi. Það þarf að styrkja hjálparsveitina núna og ég reikna með að þeir standi sig vel í því. JG vildi ekki fara með, er ekki fyrir flugelda. Við ætlum bara að fara að horfa á Sjóræningjana!

Ummæli
Skrifa ummæli