Fjölskyldan Brekkutröð 4 óskar öllum vinum og ættingjum nær og fjær gleði á jólum. Borðið nú á ykkur gat elskurnar og njótið samvista við fjölskyldu og vini. Það er nákvæmlega það sem við ætlum að gera. Takk fyrir allar góðar gjafir og kveðjur. Við hlökkum alltaf til að lesa á jólakortin sem verður eftir mat, pakka og jólamessu. Jólamessan er það sem JG hlakkar næst mest til. "Því það er svo gaman að fara í kirkju á jólunum". (Alveg orðrétt haft eftir)Myndin er að sjálfsögðu tekin í Jólagarðinum í gærkvöldi. Fjölskyldan ilmandi af skötulykt, nýkomin úr seinni skötuveislu dagsins. Jólatréð beið heima í stofu og krakkarnir búin að velja sér jólakúlur ársins 2006. JG er svolítið lúinn á svipinn en það var ástæða fyrir því, hann komst ekki nema út á bílastæði þegar hann kastaði upp. Hann fær stundum magakveisur ef mikið stendur til og búið að vera óregla á matartímum. Þegar við komum heim fór hann í náttfötin og var hinn sprækasti fljótlega upp úr því.
Nú er aðfangadagur runninn upp. Barnaefnið í sjónvarpinu, allir enn á náttfötunum þó klukkan sé langt gengin í ellefu. Grauturinn er að fara á helluna þegar ég verð búin að blogga. Eftir hádegi fer Jóhann í pakkaferðina með Ingu eða JG með sér. Tvíburarnir fara í göngutúr í nágrenninu með jólakort og ég set upp rauðkálið.
Gleðileg jól
Ummæli
Skrifa ummæli