Mikið skelfilega er hann ljótur nýi verðlaunagripurinn sem íþróttamenn ársins fá úthlutað. Ég var nú ekkert að fylgjast með verðlaunaafhendingunni en kíkti á sjónvarpið þegar áhugasamari fjölskyldumeðlimir tilkynntu hver hefði hlotið titilinn að þessu sinni. Sá þá Guðjón Val rogast með stykkið niður af sviðinu. Maðurinn hlýtur að hafa hugsað hvar í ósköpunum hann ætti að stilla þess upp.
Mér datt að vísu ekki í hug annað en að Eiður Smári fengi verðlaunin enda fáir íþróttamenn verið meira í sviðsljósinu á þessu ári. Það sannast enn og aftur að vegir íþróttafréttamanna eru órannsakanlegir!!

Ummæli
Skrifa ummæli