Við Jóhann Gylfi fórum í bíó í gær og hann í fyrsta skipti á sinni 4 ára æfi. Fáfni frænda okkar langaði svo að sjá Bangsímon og Ragnheiður mamma hans fékk þá góðu hugmynd að bjóða okkur JG með.
Það er skemmst frá því að segja að bíóið var þvílík upplifun að drengurinn getur ekki beðið eftir því að fara aftur. Hann ætlar í bíó og sjá "stóra sjónvarpið". Ég sé fram á að þurfa að fara aftur um næstu helgi.
Aftur á móti ætlaði stóra systir hans í bíó með vinkonum sínum í gærkvöldi en rak sig þá á vegg. Þar sem okkur foreldrum hennar þykir laugardagskvöld ekki vera réttur tími fyrir 11 ára börn að fara í bíó. Hún fór því ekki og var ekki sérlega ánægð með mömmu og pabba. En það verður að hafa það.

Ummæli
Skrifa ummæli