Inga Hildur, Helga og Kata
Þessi mynd er tekin í gær á Sprengidagsballinu í skólanum. Dóttir mín er þessi hvíta en hún er "ísmeyja". Hannaði búninginn sjálf en ég sá um saumaskapinn. Verst að búningurinn var eins kaldur og hann leit út fyrir að vera og mamma var ekki vinsæl þegar hún heimtaði að daman tæki með sér síðbrækur til að fara í undir nælonsokkabuxurnar.
Hún fór með sængina sína í gærkvöldi og gisti hjá vinkonu sinni í en þær voru saman í liði þessar þrjár sem eru saman á myndinni. Mamma einnar sá um að keyra þær í bæinn í morgun.
Tvíburarnir eru vaxnir upp úr öskudagsliðum, en við fórum samt í bæinn og fórum á kaffihús. Ég er alveg laus við það að pirra mig yfir öskudeginum eins og mér finnst margar mæður í kringum mig gera. Hef bara gaman af þessu öllu saman.
Í morgun þegar við komum í bæinn byrjuðum við á því að fara til Dísu systur og fá okkur smá kaffi þar og hlusta á eitthvað á annan tuginn af öskudagsliðum, en það var stöðugur straumur á skrifstofuna. Lagavalið var með fjölbreyttara móti. Ekki bara gamli Nói, svolítið af honum samt. Skemmtilegt að heyra hvað mörg strákalið voru vel undirbúin og með skemmtileg lög.
Það var heldur rólegra inni í Hafnarstræti hjá JÓH en við pökkuðum dálitlu af nammi í gærkvöldi svona til öryggis. Það slæðast alltaf einhverjir upp á loft til þeirra og þá er betra að eiga eitthvað smávegis.
Ummæli
Skrifa ummæli