Fara í aðalinnihald

Líkamsræktin

Fór með JÓH og krökkunum á Bjarg í gær. En þar var fjölskyldudagur. Strákarnir fóru og lyftu með pabba sínum en IH mætti í unglingaþrek sem boðið var upp á. Ég lét mér nægja að eltast við JG á meðan.
Gat þó spurst fyrir um það hvort þriggja mánaða gjafakortið, sem ég er búin að eiga í tvö ár, væri nokkuð útrunnið. Sem það er ekki.
JÓH er búinn að lofa mér því að ganga með mér á Súlur og jafnvel einhver fleiri fjöll í sumar þannig að það er líklega best að fara að reyna að koma sér í betra form.

Ummæli