Inga Hildur fór með bekknum sínum á Minjasafnið í gær til að kynnast gömlum íslenskum matarhefðum. Þar voru sýnishorn af ýmsum mat og þau fengu að smakka. Svo kom að einum rétti og spurði safnkennarinn yfir hópinn hvort einhver vissi hvað þetta væri.
Ein hönd hófst á loft. "Já, þetta er hræringur. Afi borðar svona og ég líka". Þetta var IH Jóhanns. og var hún sú eina sem nokkru sinni hafði kynnst hræring. Það fengu sér víst flestir smá smakk af hræringnum. "Hann var bara góður", sagði hún svo aðspurð í gærkvöldi.
Það er nú langt síðan mér hefur flogið í hug að búa til hræring, þó elda ég oft hafragraut en hann klárast yfirleitt. Líklega passar hann ekki vel með vanilluskyrinu sem er inni í ísskáp. Það er þó aldrei að vita. Mig minnir nú einhvernvegin að skyrið hafi verið ósætt sem notað var í eldhúsinu á Kristnesspítala þegar ég var að vinna þar á unglingsárunum.
Það er ýmislegt fleira sérkennilegt sem IH hefur borðað hjá afa sínum og ömmu til dæmis soðnir þorskhausar.
Hræringur er annars kaldur hafragrautur hrærður saman við skyr, ósætt að mig minnir. Snætt með mjólk og kannski sykrað út á.

Ummæli
Skrifa ummæli