Örverpinu er ekki alls varnað. Hann situr hér fyrir aftan mig og stígur rokkinn af miklum móð. Finnst líklega hljóðið eitthvað róandi. Reynir samt að komast eins hratt og hann getur svo að bandið hrekkur útaf hjólinu reglulega.
Ég skrapp svo frá til að hita mér tebolla og þá var sá stutti fljótur að grípa tækifærið og skellti sér í tölvuna. Þó að hann sé ekki nema fjögura ára veit hann upp á hár hvernig á að fara á netið (erum að vísu með sítengingu) og finna leikinn sem honum finnst skemmtilegastur.
Tölvan var alveg að gefast upp á fiktinu í honum um daginn og þá brugðum við á það ráð að setja lás á hana, sem dettur á um leið og skjáhvílan. Eftir mínútu eða svo. En það dugar ekki alltaf.

Ummæli
Skrifa ummæli