Ég setti pínulítinn teljara á síðuna og það eru bara þónokkuð margir sem slæðast hingað. Ekki veit ég til hvers það hlýtur að vera alveg óvart.
En að rófunum. Gulrófur hafa alltaf verið fyrir mér eitthvað sem maður borðar hrátt á sumrin, í rófustöppu á þorranum og svo rétt til bragðbætis í kjötsúpuna. Soðnar rófur hafa aldrei heillað mig neitt sérstaklega. En ég er búin að komast að því að svo lengi lærir sem lifir.
Uppskriftin sem ég sauð saman í fyrrakvöld þegar ekkert annað grænmetiskyns var til í ísskápnum hljóðar nokkurnvegin svona:
Gulrófa í teningum
sæt kartafla í teningum
hvítkál í strimlum
rauðlaukur í þunnum sneiðum (minnir mig)
nokkrir bitar beikon harðsteikt
Steikt á pönnu í pínulítilli olíu. Kryddað með karrýpasta úr krukku eftir smekk og látið hitna undir loki í nokkrar mínútur.
Svona er ég skrítin.

Ummæli
Skrifa ummæli