Æi, ég henti þessu rusli bara út sem ég var að reyna að setja inn í gær og gekk ekki sem skyldi. Það koma alltaf einhverjar skrítnar meldingar.
Ég var búin að skrifa langan texta um ráðningarmál á ríkisútvarpinu, eftir að hafa hlustað með öðru eyranu á Kastljósið í kvöld. Svo strokaði ég bara allt saman út. Ég ætti nú ekki annað eftir en að fara að tjá mig um pólitík hér á þessari síðu.
Var að klára að lesa yfir íslenskuritgerðir sem unglingarnir voru að klára í kvöld (á síðustu stundu!). Þeir eru að verða nokkuð liprir í að setja saman skiljanlegan texta en eru að glíma við alveg sömu vandamál og móðir þeirra í stafsetningu. Hm...

Ummæli
Skrifa ummæli