
Svona var nú fallegt skýjafarið á föstudagsmorguninn um átta leytið þegar við IH vorum á leiðinni í vinnu/skóla. Ég er að æfa mig á því að taka myndir á stafrænu myndavélina og loksins er ég búin að læra hvernig á að setja þær inn í tölvuna. Þetta er allt að koma.
Fjallið heitir Staðarbyggðarfjall og ef ég fer rétt með sést þarna í Uppsalahnjúk. Það er á áætlun sumarsins að ganga þarna upp.
Ummæli
Skrifa ummæli