Þá eru páskarnir að baki. Mætti í vinnuna fersk í morgun klukkan átta og sat námskeið til klukkan fimm, skrapp svo í bæinn eina snögga ferð og kom heim um hálf sjö og var frekar þreytt og pirruð á framtaksleysinu við húsverkin. En krakkarnir voru öll heimavið í dag. Mér láðist alveg að hringja heim og biðja um uppvask og fleira. Öðrum unglingnum brá svo að rúmið hans var samstundis komið fram á gang og hann uppi með kústinn og gólftuskuna. En þetta líður yfirleitt fljótt hjá og það sem fer fram á gang í tiltektaræðinu er oft ansi lengi inn í herbergi aftur. Nú ætla ég ekki að kvarta meira yfir börnunum mínum.
Ég var farin að halda að ég væri að veikjast. Er búin að vera svo ofboðslega "þreytt" undanfarna daga. Þurfti að leggja mig seinnipartinn í gær og fyrradag líka!!
Komst svo að því áðan að líklega eru þetta eftirköst og fylgikvillar súkkulaði og sykuráts um páskana. Þannig að nú er bara að bretta upp ermarnar og snúa sér aftur að grænmetinu. Við vorum annars ansi dugleg hjónin um páskana. Fórum út og hjóluðum eða gengum flesta morgna. JÓH langaði í píslargönguna en ég treysti mér ekki alveg í 36 kílómetra, þannig að við létum okkur nægja að fara í bíltúr austur í Mývatnssveit og tókum tengdamömmu með. Fórum svo í Jarðböðin með þeim sem voru að koma sárfættir úr göngunni.

Ummæli
Skrifa ummæli