Nú er blessunin hún eyrnalöng okkar, sem við fengum fyrir jól, að verða fullorðin, a.m.k. komin á unglingsár. Við ætlum að byrgja brunnin áður en köttunum fjölgar á heimilinu og láta taka hana úr sambandi.
Ég hringdi því í dýralækni í gær og var sagt að ég gæti komið með hana í dag. Við IH brunuðum svo í bæinn áðan. En af því að ég hef svoddan gullfiskaminni á stundum þá var ég alveg búin að gleyma því að ég hefði átt að fara með köttinn fyrir hádegi ekki seinnipartinn!! Stundum þyrfti ég að vera með minnisbókina hangandi um hálsinn (og penna með)
En við gerum aðra tilraun í fyrramálið. Það eina góða er að kisa er búin að fá góðan bíltúr án þess að fylgi mjög slæmar minningar.

Ummæli
Skrifa ummæli