Fara í aðalinnihald

kisa og kráka

Fórum með hana Blíðu okkar í morgun til dýralæknisins og sóttum hana aftur seinnipartinn. Hún er ennþá ansi slæpt og hefur sofið eiginlega alveg síðan hún kom heim. Þetta ástand varð heimasætunni ofviða á endanum og ég hugsa að hún muni ekki leggja fyrir sig í dýralækningar framtíðinni.

Ég sé að ég hef skrifað smávegis um líkamsræktaráhughuga húsbóndans. Ég fann loksins æfingabuxurnar mínar og mætti í body balance í síðustu viku. Ákvað að fara rólega af stað en þetta er tekur samt á þó engin séu hoppin eða hlaupin. Í gær gat ég haldið jafnvægi í ca 3 sekúndur í "krákunni". (Ég ætla ekkert að reyna að útskýra það frekar).
Við erum svo að spá í það systurnar að mæta aðeins fyrr í næsta tíma og fara í tækjasalinn til að hlaupa. Eða eitthvað.

Nú verð ég að fara að horfa á Gettu betur. Ég er bara svolítið hrædd um að Borgarholtsskóli vinni þó að ég haldi að sjálfsögðu með MA.

Ummæli