Fara í aðalinnihald

Heima er best

Kisugreyið okkar er búin að vera ein heima í heila viku, innilokuð (við töldum það áhættuminnst). Hún varð heldur glöð þegar við duttum inn úr dyrunum í gærkvöldi og er búin að mjálma yfir fjölskyldumeðlimum í kvörtunartón síðan.
Eftir að hafa slegið lóðina strax við heimkomu héldu nafnarnir út í Svarfaðardal í morgun. JG tilkynnti það þegar hann vaknaði að þangað ætlaði hann í dag!! Ég fór afturámóti út í garð og reyndi aðeins að klóra í umhirðuleysi síðustu vikna. Komst að því m.a. að það kom ekki upp svo mikið sem ein gulrót af öllu því sem ég sáði! Skil bara ekkert af hverju. En það er nú ýmislegt annað ætilegt sem sprettur bara vel. Þannig að ég læt nú ekkert hugfallast.

Svo brunuðum við IH í bæinn að versla og ná í útilegumanninn sem var að koma frá R-vík í dag og langaði alveg óskaplega mikið heim. Hann hefur ekkert komið frameftir alla vikuna. Gisti bara hjá Dísu í bænum. Enda er hann búinn að loka sig inni í herbergi hjá tölvunni og ég býst ekki við að sjá hann fyrr en í fyrramálið þegar þarf að skutla honum í vinnuna aftur. Nema mér takist að lokka hann fram með pizzunni sem ég þarf að fara að byrja á núna!!!

Til útskýringar þá fórum við í sumarbústað strax eftir afmælisskrallið og erum búin að slappa alveg ofboðslega vel af.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.