Fara í aðalinnihald

kál, krydd og fleira

Ég fékk þessa frábæru skyndihugdettu í morgun þegar ég var búin að skutla Halldóri í tónlistarskólann. Kom við í BYKO og keypti mér einn lítinn ræktunarkassa. Svo hringdi ég í JÓH og tilkynnti honum að hann þyrfti að munda skrúfjárnið í kvöld. Ég fattaði svo áðan að það fylgdu víst engar skrúfur, það er nú kannski hægt að bjarga því en það vantar víst lamir líka þannig að betri helmingur minn verður að koma við í byggingarvöruverslun.

Nú ætla ég að henda gamla jarðaberjareitnum og grisja jarðaberjaplönturnar. Það hefur ekki verið nein óskapar uppskera hjá mér undanfarið þannig að ég ætla að minnka svolítið umfangið í bili.

Af því að ég var nú komin af stað í þessari hugmyndavinnu þá varð ég auðvitað að koma við í Kjarna og keypti þar slatta af bláum stjúpum. Sem eru að vísu ekki alveg í réttri sétteringu við húsið!!! Mér fannst þetta bara fallegasti liturinn. Þær eiga að fara í lítil beð sem eru kringum reynitrén mín tvö. Bætti svo við nokkrum kálplöntum og kryddjurtum. Ég ætla svo að kaupa mér eina runnarós en það verðu gert seinna. Það þarf að vanda valið, ég keypti eina í fyrra og ég er ekki viss um að hún hafi lifað veturinn (og vorið) almennilega af.

Ég ætla svo að bretta upp ermarnar í fyrramálið ef að það verður ekki snjókoma það er að segja. Núna er orðið svo ansi kalt. Sólin horfin bak við ský og norðangarrinn næðir gegnum merg og bein.

Ummæli