Hérna fyrir neðan skrifaði ég uppáhaldssetninguna úr Dalalífi eftir Guðrúnu frá Lundi. Ég er byrjuð á sumarlesningunni, búin að blaða í gegnum bindin fimm og er loks byrjuð aftur á fyrsta bindinu. Til að lesa almennilega. Skyldulesning a.m.k. annað hvert ár en bara í sumarfríinu. Nokkrar blaðsíður á kvöldi og njóta allra skemmtilegu orðanna og setninganna.
Í fyrsta kaflanum eru þessi orð:
"Það var hagfræðin, sem þá réð hjónaböndunum. Ástin var lítið þekkt olnbogabarn, sem sjaldan þorði að láta sjá sig í birtunni".
Í fyrsta kaflanum eru þessi orð:
"Það var hagfræðin, sem þá réð hjónaböndunum. Ástin var lítið þekkt olnbogabarn, sem sjaldan þorði að láta sjá sig í birtunni".
Ummæli
Skrifa ummæli