Ég var nú samt ekkert sérstaklega hress í morgun þegar síminn hringdi fyrir hálf átta. Allra síst vegna þess að við fórum nú ekki að sofa fyrr en að ganga fjögur í nótt. Hm...
Meðan JÓH var í blaðamennskunni kom það oft fyrir að menn hringdu til að ræða málin, á öllum tímum sólarhringsins og í misjöfnu ástand. Þeim ágangi linnti nú að mestu þegar hann skifti um starfsvettvang. En sýnilega ekki alveg.
Ég var búin að ákveða að sofa lengi frameftir í morgun, enda gott næði. Inga Hildur og Jóhann Gylfi bæði að heiman og tvíburarnir bæra nú ekkert á sér fyrr en eftir hádegi nema tilneyddir. Þeir eru að reyna að sofa út... áður en þeir byrja að vinna og þurfa að fara að vakna sjálfir.
En fyrst ég er vöknuð á annað borð er best að drífa sig á fætur og fara út í sólina.

Ummæli
Skrifa ummæli