Fara í aðalinnihald

Sumarnætur

Nú er sumarnótt og fjörðurinn er feiminn
svo að fagurrauðum log slær um heiminn.
Er það satt að sólin gefi gaum
er hún gengur yfir hafið dreymin?
Litverp skýin uppí lofti varla ná sér
og þau langar til að segja: Ertu frá þér!
Jafnvel fjöllin roðna og fara hjá sér;
allir firðir eiga svona draum.

Næturþögnin tregablandin tárast
titrar dögg um stund á birkigrein.
Eirðarleysið sólinni er sárast,
sína leið hún gengur burtu ein.

Og í stundarkvöl sig felur bak við fjöllin
faðmar hana að sér gullin skýjahöllin
þar til morgungeislar verma völlinn,
vekja fjörðinn upp með lífsins glaum.

Síðla dags hann gefur henni gætur,
glæðist aftur roði sumarnætur;
henni er ekki eins leitt og hún lætur
læðist nær og vekur nýjan draum.

Við vorum á leiðinni heim úr afmæli á seinni tímanum í miðnætti í gærkvöldi þegar fjörðurinn var nákvæmlega eins og lýst er í þessu ljóði Emilíu Baldursdóttur.
Þá langar mig mest af öllu að vaka alla nóttina, hlusta á fuglana og ána og finna ilminn af sumrinu.

Þetta gerist ekki öllu betra.

Ein af þessum hamingjusömu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.