Fara í aðalinnihald

jubilantar

Við hjónakornin erum að halda upp á tuttugu ára (segi og skrifa) stúdentsafmæli þessa dagana. Ég verð víst að viðurkenna að úthaldið hjá mér hefur minnkað með árunum, hvort sem það er aldurinn eða eitthvað annað. Lokahófið er í kvöld þegar við mætum í höllina í samkvæmisklæðnaði og skemmtum okkur með öðrum jubilöntum (ég veit nú ekki alveg hvort þetta latneska orð er rétt stafsett hjá mér), eða eitthvað um sjöhundruð manns.
Það er búið að vera fj. skemmtilegt síðustu tvo daga en ég verð að viðurkenna að ég er svolítið slæpt í dag. Við fórum í stutta skoðunarferð um okkar gamla skóla í gær. Sverrir Páll leiddi okkur um nýbyggingarnar og útskýrði ýmsar breytingar. Nú ber svo við að ýmislegt dót sem notað var þegar við vorum við skólann er komið upp á háaloft og er þar til sýnis. Sýnishorn af gömlum tölvum og básar úr málastofunni (sælla minninga) svo dæmi séu tekin.

Við JÓH notuðum tækifærið fyrst við vorum á staðnum á virkum degi og gengum úr skugga um hvort umsóknir sona okkar væru ekki komnar til skila en þeir sóttu báðir um MA á endanum. Þeir þurftu eins að sækja um skólavist í framhaldsskóla á netinu eins og aðrir í vor. Það er svosem allt gott og blessað og virtist virka ágætlega en umsækjandi fær aldrei neina staðfestingu að umsóknin hafi borist í réttan skóla. Ekki þá fyrr en bréf berst um það hvort umsóknin sé samþykkt eða hafnað.

Það er skemmtileg tilhugsun að ef að þeir ljúka nú námi á 4 árum þá verða þeir að kasta hvítu kollunum í höllinni á 16.júní 2010. ásamt pabba og mömmu sem verða þá 25 ára stúdentar!! En þetta er nú bara skemmtileg hugmynd og margt getur breyst á næstu fjórum árum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.