
Einn morguninn í vikunni var svona umhorfs á pallinum og ég smellti af þessari mynd áður en ég fór í vinnuna.
Daginn áður fórum við mamma í þrjúkorter í hrútaberjamó og tíndum heilmikið. Þannig að ég á nokkrar krukkur af þessu fína hrútaberjahlaupi. mmm...
Í næstu uppstyttu verður að fara að taka upp kartöflur. En það verður líklega ekki í dag.
Unglingarnir fóru til Reykjavíkur á föstudaginn, og koma heim á morgun. Það átti að fara í búðir og fleira. Ég náði í fjósamanninn á fimmtudagskvöldið (eftir fjós). Hann ætlar úteftir um næstu helgi en þá eru seinni göngur. Bróðir hans hætti að vinna fyrir viku og er búinn að liggja heima veikur síðan, með kvef og hálsbólgu. Ég lét hann hringja í heimilislækninn á fimmtudag en það er víst ekkert við þessari pest að gera nema láta sér batna.
Skólinn byrjar svo á þriðjudaginn hjá þeim. Þeir hlakka mikið til, eru búnir að kíkja á stundatöflur á netinu og komust að því að þeir eru ekki saman í bekk, sem er bara allt í lagi.
Ummæli
Skrifa ummæli