
Uppstytta í dag og við IH notuðum tækifærið og hjóluðum í berjamó. Hann varð frekar endasleppur því bæði fór að rigna og svo hringdi útilegumaðurinn og vildi fara að komast heim. Hann var í síðustu ferðinni í dag. Frekar fáir farþegar á Egilsstaði, fleiri til baka. Hann lokaði sig inni í herbergi og skreið undir sæng strax og við komum heim, búinn að vera hálf slappur í allan dag. Ég vona að það lagist fyrir helgi því hann ætlar að heimsækja bróður sinn í sveitina og fara í réttir.
En hrútaberin eru fallega rauð. Ég þarf að fara aftur og tína meira.
Ummæli
Skrifa ummæli