
Ég snaraðist út í garð í morgun og smellti nokkrum myndum af gljámisplinum sem er svona óskaplega fallegur á litinn þessa dagana. Eins og sést var (og er enn) rigning.
Hér var því innidagur í dag. Þvegið fyrir þurrkarann, tekið til og svo bretti ég upp ermarnar og bakaði vöfflur með kaffinu. Sem var líka eins gott því það komu gestir.
Ég luma á aldeilis ágætri vöffluuppskrift sem ég fann einu sinni á netinu og hef prentað reglulega út því að ég týni alltaf blaðinu. Nú brá svo við að það er búið að breyta síðunni og ég fann ekki uppskriftina en til allrar hamingju fann ég eina útprentun.
En uppskriftin er svona:
2 egg
5-6 dl hveiti
3 tsk. lyftiduft
1/2 l súrmjólk
1 tsk salt
4 msk olía eða 50 g smjör/smjörvi brætt.
mjólk
Eggin og súrmjólkin létthrært saman. Þurrefnunum blandað saman við og síðast olíunni. Þynnt með mjólk ef þarf.
Ummæli
Skrifa ummæli