Fara í aðalinnihald

haustlægðir

Það er frekar þungskýjað þessa dagana. Dagarnir styttast og veturinn er eitthvað svo óskaplega langur fram undan. Ekki síst þegar hver dagurinn á fætur öðrum líður í roki og rigningu eða strekkingi og slyddu eða kalda og éljagangi, stundum allt í bland.
Og ég sem lýsti því yfir í klukkinu að ég væri fréttafíkill, er hætt að lesa Moggann (nema minningargreinarnar) og kveiki helst ekki á útvarps eða sjónvarpsfréttum. Baugsmál valda mér bara flökurleika.

Miðvikudagur og lífið gengur sinn gang...

Ummæli