
Svona var útsýnið einn morguninn í fyrri viku. Það er orðið svo langt síðan ég hef bloggað að ég sleppti alveg heilli helgi úr.
Síðasta sunnudag fórum við út í Svarfaðardal í réttirnar og tókum tengdamömmu með. Hún hitti marga og frétti margt! Það eru að nálgast tuttugu ár síðan hún flutti úr sveitinni og henni fannst hún þekkja orðið heldur fáar í konurnar í kaffinu.
Fjósamaðurinn fór í göngur á laugardeginum og endaði svo á gangnaballinu á sunnudagskvöldið. Þá var mömmu um og ó, en barnið er orðið sextán og það er löglegur aldur inn á svona skemmtanir. Hann kann fótum sínum forráð drengurinn, finnst áfengi vont en gerði nokkrar atferlisathuganir á samferðamönnum sínum sem gerðust drukknir mjög þegar leið á.
Núna um helgina eru göngur og réttir hérna framfrá en það er nú orðið þannig að réttirnar sem ég fór á þegar ég var krakki eru löngu aflagðar vegna þess að það er ekki lengur neitt fé sem gengur hér í fjallinu. Hér eru þó aðrar réttir sem standa enn fyrir sínu. Gangnamenn hér fengu ekki neitt sérstakt veður ólíkt félögum þeirra um síðustu helgi en þá stytti upp á laugardag og sunnudag svona rétt á meðan verið var að koma fé af fjalli.
Ummæli
Skrifa ummæli